...Að bjóða stelpunum að ganga í stéttarfélag?
Ég hef talað um það áður og geri það aftur nú. EF fólk vill eftirlit með þessum bransa, hvar eru þá stéttarfélögin? Hvar er örrygislínan? Hvar er "vörður réttlætis" og "vinur hins vinnandi manns" eða kannski "konu" í þessu tilviki...
Ég spurðist einusinni fyrir í ónefndu stéttarfélagi afhverju strípandi konur fá ekki að vera í þeirra stéttarfélagi. Fékk svör á þá leið að þar sem það væri alltaf verið að reyna að koma í veg fyrir þessa starfsemi  væru þeir ekkert að leggja það sérstaklega á sig að eyða tíma í eitthvað sem er svo óvíst að verið hér áfram. Það eru 2 ár síðan..
.... Og kannski er ég ein um það en mér fannst ég alveg mega tilheyra stéttarfélagi þegar ég var að dansa fyrir um 5 árum síðan og finnt stéttarfélög vera búin að bíða full lengi eftir því hvort stripparar fái inní þeirra félög eða ekki!
Þannig hérna er áskorun til allra, látið þetta berast, skrifið jafnvel ykkar eigin ástæðu afhverju ykkur finnst að stripparar eiga að tilheyra stéttarfélagi því ég sé milljón mismunandi ástæður. Og það á ekki að skipta máli hvað fólki finnst um starfsemin eða nektardans sem slíkan.
Það ætti að vera alveg augljóst að ég vil fá stelpurnar mínar inní stéttarfélög því það finnst mér vera réttur hverrar manneskju sem er í atvinnu og borgar skatta.
Ég get ekki ímyndað mér afhverju fólk sem er á móti strippinu vilji ganga þvert á rétt stelpnanna sem vinna við það. Og ef fólk virkilega heldur að þeirra aðstæður séu svo ömurlegar og vilja að haft sé eftirlit með þeim og þeirra vinnu aðstöðu, þá hélt ég alltaf að stéttarfélög væru eimmitt í eftirliti með slíkt.
Og ef fólk virkilega trúir að líf þeirra kvenna, sé svo ömurlegt hvernig er hægt að neita þeim um eitthvað sem eiga að vera sjálfsögð mannréttindi, að eiga stéttarfélag að...
Í dag á ég frí áðuren ég byrja í nýju vinnunni minni á morgun. Ég fór seint að sofa í nótt, vaknaði snemma af sjálfsdáðum og fann hve líf mitt er miklu betra eftir að ég tók trú. Lífið er svo gott að ég blogga annan dagin í röð, eitthvað sem hefur ekki komið fyrir lengi hjá mér.
Ég byrjaði daginn hjá mér á að fletta upp boðorðunum 8 eða einsog það heitir á frummálinu "The Eight "I'd Really Rather You Didn'ts"". Þessi boðorð fara yfir allt sem stendur mínu hjarta næst og gerir það að mínu mati á mjög skynsaman máta. Mig langar að fara yfir þessi atriði sem maður á helst ekki að gera og þó ég hafi tekið trú þýðir það ekki að það hafi hreinsað letina af mér og birti ég því það sem ekki má á upprunalegu tungumáli í þeirri von um að sem flestir skilji ensku. Eigin innskot eru skáletruð
The Eight "I'd Really Rather You Didn'ts"
I'd really rather you didn't act like a sanctimonious
holier-than-thou ass when describing my noodly goodness. If some people
don't believe in me, that's okay. Really, I'm not that vain. Besides,
this isn't about them so don't change the subject.
Ég er þakklát mínum Guði fyrir að leyfa mér að vera ég og leyfa öðrum til að trúa á það sem þeir vilja. Í framtíðinni ef ég lendi í orða átökum við fólk annrrar trúar þá er fínu lagi fyrir mig að bakka og hætta að rífast því minn Guð veit hvað býr í mínu hjarta og vill greinilega forða mér frá átökum sem skipta kannski ekki máli þegar upp er staðið.
I'd really rather you didn't use my existence as a means to
oppress, subjugate, punish, eviscerate, and/or, you know, be mean to
others. I don't require sacrifices, and purity is for drinking water,
not people.
Það veitir mér svo ómælda ánægju að það er hreinlega bannað að gera það sem ég tel vera toppurinn af illmensku og svo er það undirstrikað með að það sé bannað að vera bara vondur við aðra. Ég er líka þakklát fyrir að hann skilgreinir bara þessa eðal-illsku og segir við megum ekki vera vond við hvort annað því auðvitað eigum við sjálf að vita hvenær við erum vond við aðra og hvenær ekki. Það mun aldrei vera krafist af mér að fórna fjölskyldumeðlimi og ég þarf bara að leitast eftir því að vera góð manneskja frekar en syndlaus.
I'd really rather you didn't judge people for the way they look, or
how they dress, or the way they talk, or, well, just play nice, okay?
Oh, and get this into your thick heads: woman = person. man = person.
Samey = Samey. One is not better than the other, unless we're talking
about fashion and I'm sorry, but I gave that to women and some guys who
know the difference between teal and fuchsia.
Öll erum við jöfn fyrir Fljúgandi Spaggettí Skrímslin , við erum öll nákvæmlega eins nema með einu smávægilegu fráviki, konur og hommar klæða sig betur. Og aftur er undirstrikað að við eigum að vera góð við hvert annað.
I'd really rather you didn't indulge in conduct that offends
yourself, or your willing, consenting partner of legal age AND mental
maturity. As for anyone who might object, I think the expression is "go
fuck yourself," unless they find that offensive in which case they can
turn off the TV for once and go for a walk for a change.
Þetta eru að mínu mati svona "common sense" reglur um gott kynlíf. Ég er þakklát mínum Guði fyrir að setja þetta svona skýrt fram.
I'd really rather you didn't challenge the bigoted, mysogynistic, hateful ideas of others on an empty stomach. Eat, then go after the bitches.
Minn Guð vill ekki að ég fari í orðaátök við þá sem eru illir á einn eða annan hátt á fastandi maga. Og enn undirstrikar hann hvaða hegun er honum eða neinum öðrum ekki bjóðand.
I'd really rather you didn't build multi million-dollar synagogues
/ churches / temples / mosques / shrines to my noodly goodness when the
money could be better spent (take your pick):
Ending poverty
Curing diseases
Living in peace, loving with passion, and lowering the cost of cable
I might be a complex-carbohydrate omniscient being, but I enjoy the simple things in life. I ought to know. I AM the creator.
Ég veit ekki með ykkur en mér finnst þetta vera mjög lýsandi fyrir hvað Hann er í raun góður og vill allt fyrir okkur gera.
I'd really rather you didn't go around telling people I talk to
you. You're not that interesting. Get over yourself. And I told you to
love your fellow man, can't you take a hint?
Mér þykir vænt um þetta boðorð útaf tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi þá erum við öll jöfn í hans augum, sama hvað. Og svo veit ég ekki hvort litli heilinn minn mundi lifa ef Guðleg vera/skrímsli talaði við mig.
I'd really rather you didn't do unto others as you would have them
do unto you if you are into, um, stuff that uses a lot of
leather/lubricant/vaseline. If the other person is into it, however
(pursuant to #4), then have at it, take pictures, and for the love of
Mike, wear a CONDOM! Honestly, it's a piece of rubber. If I didn't want
it to feel good when you did it I would have added spikes, or something.
Hér undirstrikar Hans Heilagleiki að við eigum alltaf að vera góð við hvert annað og að nauðsyn sé að nota smokka. Hef aldrei skilið önnur trúarbrögð sem mæla mót notkunn smokka þar sem þeir bjarga mannslífum. Farin að hallast örlítið að því að aðrir Guðir vilji þegnum sínum illt, en hvað veit ég kannski var þessi regla sett á aðra þegar "guðir töluðu við útvalda menn"....
Á þessum tímapunkti reikna ég með að fólk haldi að ég sé alveg að farast úr húmor en nú ætla ég að uplýsa ykkur um svolítið. Ég hef nú lengi kallað mig trúaða manneskju þó ég hafi ekki titlað mig kristna. Ég hef lengi kosið að trúa að biblían er rugl sem er skrifuð af mönnum en ekki Guði. En ég hef jafnframt kosið að trúa því að það sé til æðri máttur, eitthvað afl sem hvetur okkur áfram í góðverkum, heldur í höndina á okkur þegar okkur líður illa og gleðst með okkur þegar góðir tímar eru.
Allt sem að ég hef leitað að í trúarbragði kemur bara í formi Fljúgandi Spaggetti Skrímslis. Og ég veit það hljómar skringilegalega en það hefur færst yfir mig undarlegur friður, ég hef fundið það sem ég hef leitað að og ég get hlegið með mínum Nýja Guði.
Hið góða afl sem ég hef leitað að kemur fram í góðmennsku og húmor sem eru hlutir sem ég kann vel að meta, ásamt "common sense".
En nú ætla ég að halda áfram að kynnast nýju trúnni minni og hugsanlega matast í leiðinni.
Sauced be you Soul
XxX
Sleepless
Ég á illann mann og sérstaklega vondann maka
Maðurinn minn er nörd af guðs náð og sem nörd hefur hann sýnt mér ýmsa hluti á netinu og nú síðast í gær sýndi hann mér að til væri maður að nafni Richard Dawkins. Umræddur Dawkins er trúleysingi og nánast talsmaður trúleysingja. Til er mikið af efni eftir hann, bækur, fyrirlestrara  og viðtöl og er ég búin að eyða miklum tíma (síðan í gær) að lesa mig til um þennan annars ágæta mann.
Eftir að hafa horft á fyrirlestur hans um bókina sína "The  God Delusion" tók ég þá ákvörðun að mig langi að ganga í trúarhóp. Þessi trúleysingi sannfærði mig um ágæti trúarbragða og er ég að velta því fyrir mér í dag hvort ég eigi að ganga til liðs við eitt af tveimur trúfélögum sem ég hef nýlega uppgötvað.
Fyrst var ég að spá í að ganga til liðs við hóp sem trúir á  "The Invisible Pink Unicorn" en eftir að hava skoðað það aðeins ákvað ég að líta aðeins á trú sem aðhyllist "The Flying Spagetti Monster. Eftir að hafa skoðað málið er sála mín seld fyrir spaggettí.
Ég hef ákveðið ein með sjálfri mér að hin eini sannleikur er spaggettí og sjóræningjar. Ég er nútíma sjóræningi með víkingablóð í æðum og ég borða mikið pasta þannig það liggur beint við að ég eigi heima þarna betur en annarsstaðar. Mig langar að tilheyra trú sem gagnrýnir mig ekki fyrir mig heldur það að ég reyni að lifa mínu lífi í sátt við mitt samfélag (þó mitt samfélag virðist sjaldnast vera sátt við mig), láta gott af mér leiða og alltaf að taka upp hanskann fyrir þá sem eru minnmáttar. Reyndar er ég líka búin að rekast á það að það er líka leyfilegt að trúa og dýrka Fljúgandi Spaggettí Skrímslið á sinn hátt en það þykir óvirðing að kenna leiðir Fljúgandi Spaggettí Skrímslisins ekki klæddur í sjóræningja galla.
Heppin ég að eiga sjóræningja galla
En hvað koma sjóræningjar þessari trú við? Jú þeir hafa, einsog svo margt annað, fengið slæma útreið í sögu heimsinns og hefur verið dregin upp vond mynd af þeim í öðrum trúar hópum, ber þá helst að nefna Kristna og Hare Krishn. Fyrir þá sem eru forvitnir þá mun ég pósta linkum neðst og aðrir geta farið á wiki.
En þessi trú heldur líka uppá "talaðu einsog sjóræningi" daginn sem er 19. september, því styttist í mína fyrstu trúarhátíð  og aldrei að vita kannski fæ ég fleiri til að halda uppá daginn með mér???
En nú er ég farin að lesa meira um þessa heillandi trú og verða trúarrækin manneskja.
Yarr,  Sauced be your soul....
The Church Of The Flying Spaghetti Monster
Guide to Pastafarianism
Samfélagið ætlast til þess af okkur ollurm að við séum "eðlileg", "venjuleg". En hvað er til ráða þegar maður er það bara ekki og alveg sama hvað maður reynir þá passar maður ekki í það mót sem er ætlast til að maður passi í. Og það sem verra er ef maður reynir að koma því á framfæri að maður er ekki einsog flestir þá er það dregið í efa að maður segi sannleikann.
Það stakk mig rosalega í augun að sjá mikið af fólki hér á moggabloggi draga í efa sannleiksgildi heimildar þátts sem sýndur var á skjá einum um líf vændiskvenna í Englandi. Það er ekkert leyndarmál að ég styð lögleiðingu vændis og öll vitum við rökin með og á móti, ég ætla ekkert að fara útí það. En mig langar að segja frá einusinni í viðbót frá mínum ástæðum fyrir þvi að fara í stipp og gefa fólki aðeins meiri upplýsingar um mína reynslu og upplifun.Gefa ykkur betri innsýn í afhverju ég er einsog ég er og hversvegna ég passa ekki í neitt fyrirfram ákveðið mót.
Ég hef alltaf upplifað mig öðruvísi, allt frá því ég var barn hef ég verið viss um að ég sjái heiminn allt öðruvísi en  allir aðrir í kringum mig. Ég er alin upp af góðum foreldrum sem jú kannski á tímum voru heldur ströng frekar en eitthvað annað. Ég elska foreldra mína meira en allt einsog hefur komið fram í öðrum færslum. Og ég veit að foreldrar mínir elska mig jafn mikið til baka, en jafnvel þau hafa alltaf vitað að ég er ekki einsog fólk er flest.
Ég leiddist útí stripp og mér fannst það gefa mér mikið bakbein, kjark og þor til að mæta öllu sem blæs á móti mér og tækifæri til að vera sjálfri mér samkvæm án gagnrýni frá þeim sem ég umgekkst mest (sem því miður á þeim tíma voru ekki foreldrar mínir). Ég fann frelsi sem ég hafði aldrei upplifað áður og það fyllti mig af eldmóð sem mun fylgja mér alla ævi. Ein vinkona mín þakkaði mér einusinni fyrir að hafa boðið henni að koma að vinna með mér í eina kvöld stund, upplifði það sama og ég, við vorum frelsaðar frá steríó týpískri sýn á lífið. Lífið er ekki bara svart/hvítt, það er ekki bara til gott og illt, heldur er heimurinn í öllum regnbogans litum og það er til fólk sem er hvorki gott né vont, það bara er...
Ég tel mig vera eina af þeim manneskjum, hvorki vond né góð, ég bara er. Ég hef velt því mikið fyrir mér síðast liðið ár hvort ég sé góð eða ill. Hef jafnvel gengið svo lang að pæla í hvort ég sé góð manneskja sem geri vonda hluti eða vond manneskja sem geri góða hluti. Elskulegi maðurinn minn hefur reynt að sannfæra mig um að ég sé góð stelpa, vel upp alin og geri allt fyrir þá sem mér þykir vænt um og mundi ekki hika við að fórna mér fyrir góðan málstað. En þegar upp er staðið þá mundi ég hiklaust vaða yfir einhvern ef það mundi tryggja mér betri stað í lífinu, ég mundi ekki taka neina ánægju af því, en ég geri það sem ég get til að tryggja sjálfa mig og þá í kringum migágætis lífi.
Ég hef í sjálfu sér aldrei litið svo á að ég væri eittvað óeðlileg, enda er sagt að fólk sé jafn mismunandi og það  er margt. En hvað ef ég væri óeðlileg? Er þá ekkert pláss fyrir mig í ykkar heim? Má ég ekki vera partur af samfélaginu sem ég sé svo öðruvísi? Og ef þið viljið mig ekki í ykkar samfélagi hvar á ég þá að vera?
Ég lít svo á að það eru tvö samfélög á landinu, þetta sýnilega og það ósýnilega. Þetta löglega og það ólöglega. Og ef löglega samfélagið vill mig ekki........
Nýlega tók ég persónuleika próf hjá sálfræðingi og þar kom fram að ég væri frekar venjuleg en ætti tilhneigingu til að vera ögn andfélagsleg. Það er eitthvað sem ég ætla mér ekkert sérstaklega Ég hef bara eiga minn rétt til að vera til. Og já ég er stundum á skjön við samfélagið (og reyndar það eina sem þið hafið séð af mér er að ég sé bara á skjön við samfélagið en það er ekki alveg rétt mynd af mér) en ég meina ekkert illt ég vil alls ekki troða mínum siðgæðum uppá aðra vil bara fá að vera ég sama hversu skrítin ég er í ykkar augum. Ég er sterk og get tekið gagnrýni en ég þoli það illa að vera skikkuð til að fara eftir reglum sem eru settar af fólki sem ekki skilja mig eða taka tilliti til mín.
Ég hef reynt í mörg ár að koma mínu sjónarmiði á framfæri, það eru ekki allir eins. Ég virði grundvallar reglur samfélagsins og geri engum öðrum illt. Ég reyni að hafa aðgát í nærveru sálar.
Mig sveið sárt undan þegar ég var að vinna á Goldfinger þegar þangað mættu feminista félagið og mótmælu konu sem söluvöru. Ég skildi vel og sé enn þann dag í dag þeirra sjónarmið. Og enn þann dag í dag finnst mér þær hafa  einhliða sýn á málinu. Og þegar ég hef boðist til að tala og segja mína sög, einsog svo margar aðrar, þá er sagt að okkar rödd skipti ekki máli. Okkar sýn skiptir ekki máli. Ég hef aldrei viljað neitt meira en að vera partur af samfélagi en fæ hvergi inn því ég skipti ekki máli, ég er vond manneskja samfélagið hefur dæmt mig og ég tek út mína refsingu þar til ég dey, nema ég kunni að dulbúa mig. En mun þá samfélagið ekki alltaf sjá mig sem úlf í sauðagæru?Má ég ekki fá að vera lítið lamb sem villtist aðeins frá hjörðinni, kannski pínu svartur sauðu, sem fann mína leið til baka og er svo ánægð að finna hjörðina mína og fá að vera með aftur?
Og hver veit, kannski finn ég önnur lömb á leiðinni sem vilja vera með í hjörðinni? Og það sem meira er kannski finn ég lamb sem raunverulega er verið að ráðast á og ef ég er partur af hjörð get ég kallað á hjörðina til að ráðast gegn óréttlæti. Úlfar eru kannski hættulegir en ef við erum mörg lömb saman þá ráðum við við þá. En ég ein ræð ekki við úlf og get ekki kallað á hjálp ef ég tilheyri ekki hjörð eða er partur af hjörð sem vill ekki heyra í mér.
Ég er ekki venjuleg og hef fengið staðfestingu á því, staðfesting sem mig langar ekki að deila með ykkur því svo langt sem ég veit hefur samélagið ekki pláss fyrir fólk einsog mig. Og þið sem prumpuðuð á þáttin á skjá einum gerið ykkur grein fyrir að með því eruð þið að loka á fólk einsog mig og ég er langt í frá að vera ein. Við erum mörg þarna úti sem vilja bara gera gott vilja deila með ykkur því sem við sjáum að er að. Við erum mörg sem erum ekki "norm" en erum heldur ekki ill. En í stað þess að það sé einusinni hægt að taka okkar sögu til greina þá er prumpað á okkur af mikilli óvirðingu, við kölluð nöfnum og allt gert til að lítillækka okkur. Afhverju getum við ekki lifað saman og borið virðingu fyrir því að við séum ósammála? Afhverju getum við ekki unnið saman?
XxX
Sleepless
Prumpið sem ég tala um (sjá í svörum)
Ég er búin að vera að vinna svo sjúklega mikið að ég held að heilinn á mér verði gufusoðinn bráðum (ef það er ekki búið að ske og ég hreinlega fattaði það ekki því heilinn á mér er gufusoðinn..... ahhhh you catch my drift...)
Og ofan á það er drama drama drama! förum létt yfir dramað, ætla að skrifa meira um stæðsta dramað á sunnudaginn, treysti mér hreinlega ekki til að tala um hina látnu og mikla og grófa óvirðingu að svo stöddu.
En já Litli bróðir vinkonu minnar lést um síðustu helgi, féll fyrir eigin hendi, frænka mín sem ég hjálpaði að fá eftirá pilluna (sjá "gott að vera treyst") er orðin ólétt og staðráðin í að eiga og ég og pabbi áttum hörku rifrildi í dag þó það sé hugsanlega það eina sem er yfirstaðið og kannski ekki beint drama lengur, var það barastórt drama í smá tíma
Vonandi hef ég það í mér að skrifa um óléttu stand frænku minnar en þar sem ég er ósátt við hennar ákvörðun er ég ekki viss um að það sé sniðugt af mér að setja inn á netið afhverju ég er ósátt þegar hún er búin að taka ákvörðun og ljóst er að þettað barn mun koma í heiminn. Ekki vil ég að þegar barnið er farið að lesa að það lesi á netina það sem réttilega á heima í hjarta mínu og ekki ekki opinberum vettvangi.
Og svo dó George Carlin síðast liðinn sunnudag, ég syrgi hann mikið
Farin að skæla í koddann minn.
XxX
Ég fór til foreldra minna í gær, held ég hafi aldrei sérstaklega minnst á að þau búa úti á landi þannig það tekur mig um klukkutíma að keyra til þeirra. Ég lít ekki á mig sem ökuníðing jafnvel þó ég virði sjaldnast hraðalög þegar ég er komin á þjóðveginn. Mér finnst bara best að vera keyra á 100-120. Mér bara finnst það vera fínn hraði á þjóðveginum og ég finn ég verð soldið pirruð ef ég neyðist til að keyra á 80-90. Núna í haust fagna ég því að hafa verið með bílpróf í 9 ár (tók það þegar ég var 18) en í gær var ég í fyrsta sinn stoppuð og sektuð.
Ég var gripin á 107 og þegar lögregumaðurinn kom að bílnum mínum og sagði mér að þeir væru að stoppa mig fyrir ofhraðan akstur þá svaraði ég skömmustulega að ég vissi uppá mig sökina....
Ég hef alveg áður verið stoppuð í eftirlit (reyndar var ég í fyrsta sinn á ævinni stoppuð fyrir að keyra með hazard ljósin , en það er önnur saga...) og alltaf hefur það reynst mér best að vera bara súper kurteis en ég vissi líka alveg að ekkert mundi koma mér frá þessari hraðasekt. Ég var eins kurteis og ég gat við löggurnar sem gáfu mér hraðasekt og þeir voru almennilegir á móti og slepptu því að sekta mig fyrir að vera ekki með ökuskírteinið á mér
Ég þakkaði þeim kærlega fyrir að sekta mig ekki meira en þegar ég var að fara stíga útúr bílnum ætlaði ég að fara að þakka fyrir mig en hætti snögglega við. Sagði við lögguna að maður þakki nú kannski ekki alveg fyrir stoppið en óskaði þeim góðs dags engu síður og fór mína leið.
En þó þetta sé í fyrsta sinn sem ég er stoppuð þá er þetta ekki fyrsta hraðasektin mín því ég hef tvisvar verið gripin af hraðamyndavél, reyndar var það bara með viku millibili og á leiðinni til/frá mömmu og pabba. Ég var gripin af myndavélunum í haust þannig ég er soldið farin að óttast það að missa prófið vegna punkta.
Ég skil samt ekki afhverju hraðin á þjóðveginum er ekki hækkaður smá yfir sumarið. Bara svona 100-110 væri æði.
XxX
Sleepless
Ég vaknaði í morgun og horfði á manninn minn elskulega og fann einhverja gífurlega þörf fyrir að tjá mig hvað ég elska hann mikið. Velti því ögn fyrir mér hvort þetta séu einhver eftirköst af því að hafa séð og spjallað aðeins við Dr. Ruth í gær. Vissulega gaf það mér vængi en eftir smá umhugsun þá veit ég að þó ég hafi vængi hefur maðurinn minn gefið mér yndislegt líf, ég held að fátt toppi það.
Ég hef skrifað nokkur eiginleg ástarbréf til mömmu minnar, sum hef ég birt hér, og það er mjög gefandi að láta þá sem þú elskar mest vita að þeir eru elskaðir.  Vil ég hveja alla til að nýta daginn og skrifa lítið ástarbréf hér á moggablog, Störtum saman blogg tískubólu sem gefur af sér og kemur frá hjartanu!
Ég upplifi mig sem heppnustu manneskju í heimi, aðeins 18 ára gömul kynntist ég ástinni minni, 18 ára var ég byrjuð að búa með þeirri mannseskju sem gerir mig hluta að heild. Saman höfum við farið í gegnum ýmislegt sem margir telja skrýti, óeðlilegt og jafnvel skemmandi fyrir sambönd. Þú tókst því með stóískri ró þegar ég fékk tækifæri til að fara útí stripp og gafst mér æðislegasta tækifæri í mínu lífi og varst mér ómetanlegur stuðningur. Ég veit að Strippið var oft á tíðum erfitt fyrir þig en þinn stuðningur og það að þú leyfðir mér að vera bara litla, vitlausa ég er eitthvað sem fáir ráða við. Þú ert einn af afskalplega fáum sem vita hvernig ég er í raun og veru og einn af ennþá færri sem ég get búið með.
Í 8 ár hefurðu gefið mér Ást, Traust, Virðingu og Hamingju. Ég get alltaf talað við þig alveg sama hvað það er hallærislegt eða erfitt þá skilurðu mig líka alltaf. Og jafnvel ef ég fæ útúr geðveika hugmynd þá ertu gæddur þeim hæfileika að geta talað mig af því, ég held að þú sért sá eini þar. Þú takmarkar mig aldrei og viðheldur einhverju formi af skynsemi í mínum haus, en þegar upp er staðið ertu þú öll skynsemin sem ég er ekki.
Ég elska þau augnablik þegar við sleppum okkur og látum einsog fávitar hérna heima, gerum hluti sem ætti ekkert að vera nefna hér, fólk mundi halda að við værum geðveik. En það er það sem ég elska svo mikið, þessi augnablik sem við eigum saman þar sem við getum gert akkurat það sem við viljum þegar eignileg barnsleg gleði ræður. Fara í eltingarleik eða gamnislag eða eitthvað álíka barnalegt sem heldur okkur ungum í anda, samt er ekkert barnalegt við eftirleikinn
Takk fyrir að vera til og takk fyrir að vera minn
XxX
Sleepless
Ég sit nú heima með ferlegasta kvef sem ég man eftir. Nefið stíflað útí eyru og nasavængir orðnir rauðir og sárir eftir mikil átök í snýtingum. Ég sat hér í gær vopnuð strepsils og eitthvað sem ég taldi vera fínan snýtupappír, svona sem er keyptur í litlum pökkun og hentar vel í veski. En pappírinn var að klárast svo ég bað manninn minn elskulega að kaupa fyrir mig neseril og snýtupappír á leiðinni heim úr vinnunni.
Kallinn kom heim með pappír sem er með svona "balsam" í, vildi vera voða góður við mig og það var hann. Ég hafði alveg trúað því að pappírinn sem ég var með væri fyrir viðkvæma nebba en ég fann það skýrt og greinilega að þessi kleenex með balsam er klárlega það besta fyrir afskaplega kvefaða og sára nebba, þetta er einsog að snýta sér í silki.
En svona fyrir þá sem eru jafn sárir í nefinu og ég þessa daganna og tíma/vilja ekki kaupa sér svoan pappír þá langar mig að benda á að það er rosa gott að smyrja auma svæðið með þykku lagi af vaseline-i. Manni svíður ekki undan því einsog með önnur krem og það skiptir ekki máli þó þú snýtir það í burtu má alltaf bera meira á (eða hafa bara svo mikið á að það fer bara smáræði þegar maður snýtir sér).
En maðurinn minn elskulegi fór aftur útí búð í morgun, áðuren hann fór að vinna og keypti fyrir mig 2 kassa af kleenex. Ég kláraði hinn í gærkvöldi og því orðin tissjú laus, ekki er það gott þegar maður er eina kvöldstund að klára einn kassa. Ég held að vísu að það sé persónulegt met hjá mét í snýtingum
En jæja, farin að halda áfram að vera veik og kannski reyna að klára greinina sem ég var byrjuð á.
Med stíbblad neb og svaka nebbmælt
Sleepless
Mér finnst ég alltaf vera að sjá einhverjar villur á mbl, gildir engu hvort það séu innsláttar eða stafsetningar villur eða bara vitleysa.
T.d. var Heath Leadger tilnefndur bara einusinni til Óskars en ekki tvisvar einsog segir í fréttinni og einhverntíman var talað um Jennu McCarthy og einhverfu dóttir hennar, þegar hún á einhverfan son og fleira í þeim dúr...
Ég skal alveg viðurkenna það að ég er svona stjörnuslúðurs stelpa, enda kannski ekki almenn vitneskja að Jenna kella á son en ekki dóttur, en auðvitað spyr maður sjálfan sig hvort blaðamenn á mbl séu eitthvað að hafa fyrir því að athuga staðreyndir áður en fréttinni er skellt inn og þá að sama skapi notað villu púkann sem við notendur á moggabloggi fáum frítt.
En ég ætla líka að viðurkenna að ég ætla að kaupa mér svona Heath Ledger/Joker dúkk, vonandi verður hún til þegar ég fer næst í Nexus.
Ég á unga frænku, rétt undir tvítugsaldri, sem var að flytja hingað heim eftir margra ára veru í útlöndum með foreldrum sínum. Hún er hér ein og flutti í hverfið hjá mér og kemur því mikið í heimsókn. Hún veit allt um mína fortíð og mín framtíðarplön og höfum við orðið góðar og mjög persónulegar vinkonur á mjög stuttum tíma.
Í gær morgun kom það uppá að hún sendi mér sms  og sagðist vera í vandræðum, hvort hún mætti ekki kíkja. Þegar hún var svo komin sagði hún mér frá að hún hefði verið með strák um nóttina og að það hefði gerst slys, smokkurinn hafði slitnað
Hún hafði engan annan til að leita til og ég var pínu stolt að hún kom til mín og treysti sér að ræða þetta við mig, það er alls ekkert sjálfgefið að krakkar og ungmenni leiti aðstoðar hjá sinni fjölskydu.
En að vísu er staðreyndin sú hjá mér að frænkur á öllum aldri hafa þorað að spyrja mig útí ýmiskonar sem varðar kynlíf, klám og hvar er best að versla sér undirföt á netinu. Meira að segja hef ég svo gott samband við systur mína að hún spyr mig reglulega um ráð og hikar ekki við að lýsa fyrir mér aðstæðum sem upp hafa komið hjá henni.
Með frænku mína ung, þá var ég sjálf ekki með pening til að hjálpa henni þannig ég fékk hana til að treysta Mömmu minni fyrir þessu og fengum lítið "mömmulán" til að geta keypt "daginn eftir" pilluna. En það er bara stundum þannig að þegar manns eigin Mamma er ekki til staðar þá verður maður að fá eina lánaða.
Það er gott að vera treyst og það er gott að geta treyst. Það er gott að geta rætt viðkvæm mál og fá jafnvel aðstoð sama hvort maður er ungur og óharðnaður eða eldri og sjóaður.
XxX
Sleepless
Maðurinn minn var að benda mér á svo sniðugt Blogg hjá dömu í útlöndunum miklu. Sú dama skrifaði ansi skemmtilega færslu sem ber nafnið "What’s So Wrong About Porn?" http://divinecaroline.com/article/22081/39208-what-s-wrong-porn-
Ég las þessa færlsu og hún var svo einsog skrifuð úr mínu hjarta að mér fannst það nánast fáránlegt og get því ekki annað en deilt því með ykkur elsku pervertar og úrhrök Lansdins sem lesa bloggið mitt.
Og meira að segja svarar maðurinn minn þar svo skemmtilega. Hann heldur því alltaf fram að hann geti ekki skrifað en ég gat ekki betur séð en að hann geti vel komið fyrir sig orði og það meira að segja á (útl)enskunni.
Ég ætla að viðurkenna svoldið (virðist alltaf vera viðurkenna eitthvað hér á moggabloggi en er það ekki tilgangurinn...?). Ég er rosalega veik fyrir hryllingsmyndum og þá er ég ekki að tala um að ég sé alltaf að horfa á hryllingsmyndir, heldur akkúrat andstæðan. Ef ég horfi á hryllingsmynd þá truflast ég bara .  Ég hætti að sofa og jafnvel brenglast mitt raunveruleika skyn soldið. Þetta er soldið aðhlátursefni innan vinahópsinns, sérstaklega þar sem ég virðist vera ein um þetta en ég veit að systir mín er líka svona. Þetta eru bara myndir sem ég á ekkert að horfa á. Ég veit það best sjálf hve slæm áhrif slíkar myndir hafa á mig en ég skal gefa ykkur dæmi.
Síðasti hryllingur sem ég horfði á var "The Ring" ameríska útgáfan. Það fór svo að ég svaf varla í 3 nætur eftir á og ef ég þurfti að vera ein heima gat ég ekki verið í tölvunni eða horft á sjónvarp, þegar kærastinn minn kom heim þá fann hann mig yfileitt í felum undir sæng inní svefnherbergi þar sem ég hafði verið allt kvöldið. Og þegar ég gat sofið fékk ég alltaf martraðir, vaknaði með látum og gat ekki sofið meir.
Ég hef alltaf í gegnum alla mína ævi þráast við og horft á hryllingsmyndir, vildi ekki láta líta á mig sem minni manneskju eða hvað það var sem ég var að sækjast eftir. En staðreyndin er bara sú að ég er gífurlega myrkfælin þó ég sé að verða 27 ára gömul.
En eftir þettað ævintýri með "The Ring" þá gafst eiginlega kærastinn upp á þessu ástandi mínu og eiginlega "bannaði" mér að horfa á hrylling, hélt því fram að þetta væri nú ekki bara að hafa áhrif á minn svefn heldur líka hans svefn. Tók hann langan tíma að róa mig niður, þannig það var ekki bara ég sem missti svefn og hann sá bara betur þessa geðveiki sem að tók yfir. En það var ekki bara það að hann bannaði mér að horfa á hrylinginn heldur var ég komin með fullkomna afsökun til að segja nei. Og núna í dag, einhverjum árum seinna, finn ég bara sjálf hversu góð áhrif það hefur haft á mig að hætta bara að horfa á þessa vitleysu, hef ekkert með það að gera.
En vitiði, ég mundi aldrei í mínu lífi fara leggja til banni við slíkum myndum, enda finnst mér fráleitt að banna fullorðnu fólki að ráðstafa sínum tíma einsog það vill. Og við lifum á þeim tímum þar sem í sífellt vaxandi mæli erum við hætt að taka ábyrgð á eigin gjörðum og erum alltof dugleg við að kenna utanaðkomandi hlutum um, tölvuleikjum og bíómyndum. Höfum við enga persónulega ábyrgð lengur? Er það virkilega besta lausnin við öllum vandamálum að banna og þar með taka burt persónulega ábyrgð?  Ég meina, allar hryllingsmyndir eru markaðssettar sem "ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA" er það þá ekki á ábyrgð viðkvæmra að fara ekki á slíkar myndir?
En þarna virðist klámið vera í sérflokk, því það á að vera bannað. Ég persónulega sé margt gott við klám, eitthvað sem ég sé ekki við hrylling. Ég og maðurinn minn hofum oftar átt góða kvöldstund með klámi frekar en hrylling. Og ég hef aldrei skilið afhverju fólk er að berjast við að halda klámi frá börnunum sínum þegar viðbjóður einsog "Saw" og "Hostel"  lifir góði lífi sem fastur sess í lífi unglinga. Skil ekki hvernig fólki finnst það vera minna mál að horfa á limlestingar og upphafningu á morðum í stað kynlífs. Og ef ég væri spurð þá finnst mér kynlíf, þó það sé ekki stundað af ást, vera nær raunveruleikanum heldur en hitt...
Ég veit ekki með ykkur hin, en klám hefur aldrei skapað neina spennu eða ágreining í mínu sambandi. Reyndar er maðurinn minn yfirburða tölvunörd og hefur hann lagt það á sig að finna kynferðislega opinskátt efni (klám) fyrir mig sem hentar mér betur en þetta "male mainstream porn". Hveru margir vita að það eru til verðlauna afhending fyrir feminískt klám? Að konur eru meira og meira að komast inní þennan bransa og klámið er að breytast í þessum töluðu orðum. Það er kannski ennþá langt í land en við konur sem erum neytendur á klámi erum að vaxa og það er sífellt verið að framleiða meira sem er meira sniðið að okkar þörfum.
En jæja, nú er ég að verða sein og verð að halda þessari pælingu áfram seinna. En endilega svarið og segið ykkar skoðun.
XxX
Sleepless
Ég verð að viðurkenna að ég er pínu skotin í Prisinum William og jú kannski aðeins í Harry. Þegar ég las þessa frétt upphaflega þar sem William fór á herþyrlu til kærustunnar fannst mér það agalega sætt og fór að spá...
EF ég ætti kærasta sem væri Prins þá mundi ég eiginlega varla ætlast til neins minna en að hann kæmi a.m.k. einusinni til mín með jafn frábærum tilþrifum og þarna, á stórri tveggja hreyfla þyrlu. Og ef hann William má ekki gera þetta einusinni, þar sem hann er jú Prins, hvenær má hann þetta þá?
Mig langar samt að enda þessu stuttu færslu á því þakka manninum mínum elskulega fyrir að leyfa mér að eiga svona skot og hrifningu sem ég ber til þónokkra frægra einstaklinga í friði. Þetta eru bara dagdraumar og fantasíur hjá mér og það er mér svo mikils virði að ég megi tala um það í friði fyrir afbrýðissemi og vitleysu.
En nú er ég farin að skrifa um annarskonar fantasíur. Fylgist með og endilega takið þátt í umræðunni um klám sem ég ætla að starta hér á eftir...
XxX
Sleepless
Ég er rosalega ópólitísk í eðli mínu, ég er frekar sú sem leyfi öðrum að stjórna og væli svo þegar hlutir eru ekki að ganga  En ég hef þvílíka trú á þessum manni, hann er bara svo hrikalega mikill snillingur að hálfa væri meira en hellingur! Fyrir þá sem ekki hafa séð neitt með Eddei Izzard þá mæli ég með að fólk kíkji á hann og láti það ekki hræða sig að hann gangi í kvennmannsfötum, það er bara svo algert aukaatriði. En ég get alveg séð það fyrir mér Eddei Izzard gersamlega vera að flengja þingmenn með hárbeittum orðum sínum af stakri snilld. Reyndar ímynda ég mér að það verði c.a. svona...
<object class="youtube" type="application/x-shockwave-flash" style="width: 425px; height:350px;" data="http://www.youtube.com/v/YWSYMpuCFaQ&rel=1"><param name="movie" value="http://www.youtube.com/v/YWSYMpuCFaQ&rel=1" /><embed src="http://www.youtube.com/v/YWSYMpuCFaQ&rel=1" type="application/x-shockwave-flash" wmode="transparent" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"></embed></object>
En já, hin ópólitíska ég veit nú samt um ágætis pólitísk myndbönd
XxX
Sleepless
Ég hef oft lesið pælingar bloggara sem er á þá leið "ekki mundirðu vilja dóttir þinni, systir, móðir eða frænku að starfi við nektardans..." Staðreyndin er bara sú að við getum ekki valið fyrir aðra, alveg sama hversu mikið við viljum það þá virkar heimurinn bara ekki þannig.
Mamma mín vildi aldrei að ég færi útí stripp en því miður var það ekki hennar ákvörðun. Og ég vissi vel að mín ákvörðun mundi hafa stór áhrif á mömmu og ég vissi vel að ég mundi þurfa að mæta fordómum, en einhvernvegin hugsaði ég ekki það langt að hún mamma mín yrði líka fyrir barðinu á þeim fordómum. En svo fór sem fór og sama hvað mamma mín var ósátt við mína atvinnu og sama hversu stirt það varð á milli okkar, þá hefur mér alltaf fundist mamma mín vera hetja fyrir að mæta því sem hún þurfti að mæta.
En þegar upp er staðið þá er ég nánari mömmu minni í dag heldur en nokkurntíman áður. Það er næstum því einsog enginn synd er of stór til að ég geti viðurkennt það fyrir mömmu minni. Reyndar kom það fyrir einn daginn, meðan ég var ennþá að strippa, að mamma  mín segir að hún hafi lesið í blöðunum að mikið hlutfall af stúlkum í klámi og strippi hefðu verið misnotaðar í æsku. Svo spurðu hún með smá glotti hvort ég væri alveg örugglega ekki ein af þeim sem ekki lentu í misnotkun, en greyið hafði aldrei í sínu lífi búið sig undir mitt svar. Minn harði frontur sem ég setti alltaf upp brotnaði á augnabliki og það eina sem ég gat stunið uppúr mér var "ég var 9 ára og ég reyndi að segja þér en þú skildir mig ekki..." Og það er dagsatt, þegar ég kom heim þann hræðilega dag þegar ég var 9 ára þá reyndi ég að segja mömmu minni. Málið var bara að vissi ekki sjálf hvað kom fyrir mig, þannig ég hef alltaf fyrirgefið henni mömmu að skilja ekki það sem ég skildi ekki sjálf.
En það breytir því ekki að mamma mín upplifði það að vissu leyti að hún hefði brugðist mér, þó mér hafi aldrei fundist það. En ég man að ég ákvað það að fyrst að mamma mín skildi mig ekki, þá mundi ég ekki minnast á það aftur. Ég man að ég ákvað að ég ein gæti varið mig og þar með var þetta dagurinn sem uppreisnin hófst hjá mér, þó hún kæmi ekki í ljós fyrr en um 13 ára aldur.
En þennan dag sem mamma mín komst að þessu um mig fannst mér soldið einsog sú ímynd sem hún hafði um mig brotnaði. Ég sagði við mömmu mína að ég treysti mér ekki til að tala um þetta frekar þann daginn en þettað var samt upphaf á eitthverju stórkostlegu á milli mín og mömmu. Ég tók þá meðvituðu ákvörðun að hætta að vera í feluleik fyrir mömmu minni og segja henni bara satt sama hversu óþægilegur sannleikurinn gæti verið. Ég sagði mömmu frá þessari ákvörðun og að það væri hennar að stoppa mig af ef henni finnist óþægilegt að tala um eitthvað. Í fyrsta sinn í mörg ár, ef ekki bara áratug fékk mamma að sjá dóttir sína með öllum kostum og göllum. Og ekki bara nóg með það ég var sennilegast í fyrsta sinn algerlega heiðarleg við hana, við gátum talað saman og verið sammála um að vera ósammála.
En hér langar mig aðeins að minnast á hvað ég sem stúlka sem var misnotuð í  æsku fékk útúr því að vinna sem strippari. Það er alltaf sagt að þetta sé form af kvennakúgun að láta konu fækka fötum fyrir pening en ég upplifði það alltaf akkúrat öfugt, það var ég sem eiginlega kúgaði karlmenn. Ég upplifði karlmenn sem svo heimsk fyrirbæri að borga fyrir stripp og þeir komu í mitt hús þar sem ég var örugg og þeir gátu ekki sært mig en ég gat sært þá, fjárhagslega a.m.k. og valdið var alltaf mín megin. Var farin að líta á þá sem heimska þorska sem komu inn og ég þyrfti bara að verka þá . En um leið er ég að viðurkenna mína eigin fordóma gagnvart karlmönnum og þeir líta nú kannski verr út en þeir eru í raun og veru en ég að vissu leiti trúi því að karlmenn gætu ekkert ef ekki væri fyrir okkur konur. En að sama skapi mundi ég ekki vilja lifa án karlmanna og veit að þessi hugsun mín á við um langfæsta karlmenn...
Seinna, eftir að ég var hætt að dansa tók ég mér stöðu sem barþjónn á "venjulegum" bar í miðbænum og lenti í því að árásarmaðurinn frá því ég var 9 ára gekk inná barinn MINN. Ég fékk einn dyravörðinn til að kasta honum út og gaf þá skýringu að hann hefði nauðgað vinkonu minni, sem reyndar er líka satt (umræddur dyravörður var fyrrum hermaður frá Króatíu og sá ekki sólina fyrir mér og ég var hrædd um óþarfa vesen). Hann kastaði ófétinu út en gat ekki almennilega útskýrt afhverju hann mætti ekki koma inná þennan bar, þannig dyravörðurinn náði í mig til að útskýra (úps). Ég fann hvernig ég byrjaði að titra en það var ekki útaf hræðslu heldur reiði. Þarna mætti ég árásarmanni mínum og sagði honum að ég mundi hvað hann hefði gert vinkonu minni. Hann byrjaði að æpa á mig að það væri lygi og uppspuni. Þá fauk í mig og ég hvæsti á hann að ég mundi líka hvað hann hefði gert mér, nefndi stað og nefndi vin hans sem var með honum þann daginn en tók ekki þátt í því sem hann gerði mér. Ég hvæsti á hann að ég væri ekki hrædd við hann, ég væri ekki barn lengur og hann gæti aldrei aftur snert mig. Þá hótaði hann að ná í lögguna og kæra mig. Ég svaraði honum af öryggi að honum væri velkomið að ná í lögregluna, ég hefði líka sitthvað að segja þeim og það væri lítið mál fyrir mig að ná í vinkonu mína og hugsanlega fleiri stelpur (ég hef að vísu heyrt af fleirum en enga sem ég þekki eða hefði getað náð í) og þá fór hann með skottið á milli lappana einsog auminginn sem hann er. Ég hef aldrei verið jafn stolt af sjálfri mér og þá
Og það  sem meira var, mamma mín var stolt af mér þegar ég sagði henni frá. Vonandi leið henni einsog að hún hefði alið upp stelpu sem stendur fast á sínu og hvikar aldrei.
En þó að ég og mamma séum meira en sáttar í dag þá veit ég að hún lifir ennþá við sömu fordóma og ég. Hún segir stundum við mig að hún viti aldrei hvað aðrir vita um mig og ör ör sjaldan hefur hún sagt að hún skammist sín fyrir minn feril og ég er ekkert að draga það í efa að henni líði illa. En ég vona að mamma mín finni smá huggun í því þegar ég svara henni að ég skammast mín ekki fyrir neitt sem ég hef gert.
En það er akkúrat málið, ég hef ekkert til að skammast mín fyrir og heldur ekki mamma mín. Vissulega get ég skilið ef fólk hneykslast en ég lifi ekki mínu lífi eftir áliti annarra og mamma mín á ekki að þurfa að ganga í gegnum það. En ég er ekki mamma mín.
Mamma, þegar þú lest þetta, fyrirgefðu allan skítinn sem fólk var að miða á mig en hafnaði í fangi þínu. Ég væri ekki sú manneskja sem ég er í dag ef ekki væri fyrir þig og ég er þakklát fyrir allt sem þú hefur gert.
Og takið þetta til ykkar, þið sem aðeins hafið ímyndað ykkur að dóttir ykkar, systir, móðir eða frænka væri í þessum bransa, þið sem spúið fordómum á dansmeyjar (og foreldra þeirra) að þetta er ekki bara ímynd, þetta er raunveruleiki. Ég er dóttir og ég á móðir sem er af holdi og blóð, hún grætur og finnur til og hefur ekki bara þurft að líða hugsunarleysi af minni hálfu heldur fordóma ykkar líka.
Þegar ég sé svona frétt utan úr heim,  þá vaknar upp gífurleg ógleði og reyndar svolítið þakklæti fyrir það að hafa þau forréttindi að vera Íslensk en ekki íslömsk. En þakklætið dugir skammt.
Hér á landi er ekki verið að vinna neitt marktækt gegn kynferðislegu ofbeldi nema sá háværi minnihluti sem heldur því framm að strippdans sé einhverskonarmynd af því. Mér líður stundum einsog heildarsamfélagið hér á landi sé einsog að vera í gaggó, að stelpurnar sem strákarnir ganga slefandi eftir eru illa liðnar af þeim stelpum sem ekki fá slíka athygli. Það ríkir lítil samstaða á milli kvenna hér á landi og þær sem standa saman sparka í hinar og reyna helst að ná höggi á meðan hinar liggja niðri.
Og á meðan það er verið að reyna að koma höggi á hver aðra sitja  karlar og hlægja að okkur (eða það finnst mér).
Mér finnst það vera hræðileg að konur geti ekki staðið saman og barist gegn raunverulegu kynferðisofbeldi. Afhverju eru konu ekki að marsera saman niður laugaveg einusinni í mánuði eða jafnvel eftir hvert skipti sem alltof lítill dómur er felldur í kynferðisofbelda málum? Afhverju stöndum við ekki saman um raunverulegt ofbeld gegn okkur sem einnig viðgengst í réttarkerfinu okkar?
En nei, ofan á þetta allt saman þarf ákveðinn hópur kvenna að sæta andlegu ofbeldi sjálftitlaðra feminista og Feministahreyfinga og það þykir bara hið besta mál. Ég hugsa til baka þegar ég var að vinna á Goldfinger, í gamladaga, þegar feministahreyfinginn mætti þar fyrir utan og var að mótmæla okkur stelpunum, sögðu óbeint að við vissum ekki hvað við værum að gera og við værum beittar kynferðisofbeldi, við værum þarna nauðugar og ég man ekki hvað. Þegar ég á svipuðum tíma fór útí þetta starf því ég taldi mig vera að nýta minn feminíska rétt til að gera það sem ég vildi.
En þrátt fyrir það andlega ofbeldi sem ég tel mig og miklu fleiri kvennmenn hafa orðið fyrir, óska ég þess ekkert meir í þessu lífi en að konur á Íslandi standi saman þó að þeim líki ekki atvinna hvors annars. Að konur geti barist gegn kynferðisofbeldi saman en ekki úr sitthvoru horninu.
Og ég veit að sem þjóð erum við lítil en við höfum sýnt það og sannað að ef við tökum höndum saman þá getum við breytt heiminum, sjáið sjálfstæði Litháen og hversu þakklátir þeir eru okkur enn í dag.
Þannig mín beiðni í dag er svona:
Konur, stöndum saman gegn raunverulegu kynferðisofbeldi, sameinaðar getum veið breytt heiminum!
Hjálpum þeim sem þurfa á hjálpinni að halda og leyfið þeim konum sem kjósa sína vinnu sjálfar að sinna því starfi, þó það sé eitthvað sem þið eruð á móti. Reynum að hjálpa þar sem neyðin er mest og neyðin er sko ekki mest þar sem konur fækka fötum af frjálsum vilja, heldur þar sem þær hafa verið sviptar sínum vilja.
Sendum saman þau skilaboð útí heim að að Íslenskar konur líða ekki ofbeldi og fresissviptingu kynsystra okkar!